Krummi bloggar :)
29.04.2006 13:35:53 / duff2good

jæja enn og aftur...

Seinasti laugardagurinn minn á landinu í bili...fólk..langar að hitta sem flesta í kveld ef þið ætlið að djammast eikkað ;)  bjallið í mig

kveðja
Spánarfarinn og útlendinga tröllið 8)
Siggi hrafn 

» 8 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 00:51:01 / duff2good

púff...pifff...og allt þar á milli.....

jæja....sorry hvað ég er ógiSSSlega lélegur að blogga....úfffs..

Bara verið nóg að gera hjá mér.....og já ég fór út u seinustu helgi með Leif, jens og siggu...þetta var bara gjeggjað....held ég eigi alveg eftir að venjast þessu með stæl að lifa úti. Kaffi cosy hvað segi ég nú bara.......jíiííhhhhaaa


Margt að renna i gegnum huga minn þessa dagana......enn og aftur er ég á faraldsfæti....flytjandi landa á milli...æjj held ég hafi bara gott af því..... kynnast annari menningu og svona...

Vert að minnast þess að Barcelona er borgin sem ég og Egill fórum til 3 ár í röð takk fyrir.....fíluðum okkur svona svakalega þarna.....fórum aftur og aftur...og það eru tímar sem ég gleymi ALDREI....yndislegasti tími EVER......vá fékk svo margar góðar minningar uppí hugann þegar ég var þarna.....útað borða á staðunum niður við porta oplympica......bjórinn á spænska staðnum við römbluna.......ískallt Cava....sitges og fyrsta ferðinn okkar út saman....úff....gamlar og sætar minnigar :)

En á gamalsaldri fer ég þangað attur......með annað í huga...og það er að víkka sjóndeildarhringinn....prufa eikkað nýtt...kynnast nýrri menningu....nýju fólki og læra meira í faginu mínu...matreiðslunni góðu.

Sjáum hvað setur ...nú ef etta reddast ekki....kem ég bara..flyt ég bara heim...eikkað annað...who knows..kanski úganda?



love ya pípól.... og áf eftir að sakna ykkar flestra...without a doubt.....
kv gamli
over and out






» 2 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 18:40:17 / duff2good

Hola amigos!!!

jæja hvað er að frétta....úff nenni varla að blogga...en fréttir samt....ég er að flytja til Barcelona fólk ;)  úff úff úff...get ekki beðið...er eimmitt að fara núna á fimtudaginn næsta í 3 daga að skoða íbúðir og svona...með siggu vinkonu...´

gaman gaman......úff..þið komið að heimsækja mig í sumar ;)

out


» 9 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 01:01:50 / duff2good

you have no idea....

Annað blogg? innan 24 tíma...?

Siggi hlýtur að hafa ekkert annað að gera! Sit sveittur..hóstandi og alltof sofinn..en samt þreyttur og slappur..jeijjj
en hva með það ...best að skrifa eikkað sniðugt.

Svona meira pælinga blogg...en eikkað annað...

Hef haft heilann dag í að hugsa núna í dag...um hitt og þetta...látið eiginlega hugann reika út og suður um hitt og þetta og eikki neitt. Einhverra hluta vegna fór ég að hugsa um hvað ég á það bara ágætt og hef ekki yfir neinu að kvarta...well næstum ekki :D

Spáið í þvi hvað margir hafa það slæmt....fólk í slæmum samböndum, kúgað, þunglynt, fátækt og svo framv....svo ekki skal nefna fólk sem fær sjúkdóma á unga aldri og kanski deyr!!!?


Verður mar ekki að njóta hverrar mínutu....hverrar sekúndu..og gera akkúrat það sem manni langar til hverju sinni......þá allavega getur maður sagt...well ég allvega skemti mér ...jú ég gerði mistök en ég naut þess að vera til!

Mar á ekki að bíða eftir kærasta...eftir að verða ríkur....eftir að eignast barn, hund, bíl, eða 5 kg mars stykki. Mar á að leyfa því að koma ef það gerist......nokkurntímann...og njóta þess að hafa heilsu.....vera á lífi því fólki sem manni þykir vænt um.

little emotional i know....en thats the way it goes samt!

er það eitt ljóð frá gamla? mar spyr sig

Njóttu að lifa
því bráðum er nótt.
klukkurnar tifa
og sofðu þá rótt

Aldrei skaltu gleyma
hversu sérstakur þú ert.
Englarnir sveyma
kringum holdið bert.

Sumir kunna ekki
að lifa í takt,
ég flesta þá þekki
á þessari vakt.

Úti sé stjörnu bjarta,
hún blikar skært,
svo hættu að kvarta
og sofðu nú vært.

kv gamli















» 9 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 12:35:41 / duff2good

enn ein vikan að skella á...

jæja kæru lesendur......helginn liðin...ég ligg heima með hita og kveð...alveg æðislega gaman eða hittog....helgin var ágæt....nema veikur á sunndag..... :( vinna á laugardag og lítið annað spennandi að gerast...

Vikan lítur ágætlega út, vinna og svo halda áfram í sjálfboðastörfunum hjá rauðakrossinum...koma manni inní etta sko :) 

Fékk leiðinlegar fréttir sem hafa tekið svoldið á mig.....en þær eru persónulegar...svo segi ekki meira um það..það fer vonandi allt vel að lokum :(

hef lítið að segja...bloggandinn í minna lagi.......kvefið...beinverkir og slappleiki bera þar mest á góma....

en jæja.....bið að heilsa
siggs over and out






» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 22:10:38 / duff2good

úff úfff úfff....gaman saman allir syngja svo.......

Jæja....tilraun 2....helvítis draslið datt allt út.....ég sem var búin að skrifa lengstu færslu ever á þessu bloggi sko!!!! En hvað með það..ég set þetta í fá orð í þetta skiptið.....helgin að líða undir lok...margt áhugavert skeð þessa helgina...djamm í gær sem mér fannst nú svo sem ekkert spes...hef skemt mér betur...en samt alltaf gaman af því að vera með fólkinu sínu....var þunnur í dag...tekið þvinkupakknn á etta hjá flestum meðan aðrir fengu sér afréttara :D

 

Hvað er að ske í lífinu hjá gamla...piiff....ekkert spennandi..heyrru nema jú....er að byrja í sjálfboðastarfi hjá rauðakrossinum sem er rosa spennandi..og gefandi..vinna fyrir þenna 1717 síma...og þarf til þess 5 námskeið takk fyrir...sem byjuðuðu í seinustu viku....og 4 í þessari komandi viku...spenndi og gaman...yndislegt fólk með mér þarna J

 

Hvað er frammundann? Eru gamli að spá eitthvað spennó....well ....sko..minnz er náttlega að fara í sumarfríj bráðum ...woo hoooo í 2 vikur...og ætla til london í nokkra daga allvega...sé til hvað ég geri þaðan...allt opið.

Hef voða gott af því að komast aðeins af klakanum sko....

Langar að flytja í mitt eigið pleis...leigja..kaupa eða hvað á mar að gera....liggur á....mar spyr sig....orðinn eldgamall og enþá í kotinu....ekki sniðugt...pifff

 

Framundan er busy vika...vinna ræktinn og námskeiðinn þarna.....svo hún mun líða fljótt vonandi......það má alveg farað koma sumar sko...takk fyrir

 

Já það var eikkað hözzl í loftinu á ballinu í gær...úff hvað það voru allir að reyna að veiða.....usssss.....en ég var náttlega stilltur að vanda :) wooo hoooo annað en sumir ;)

 

Hvað er með þetta kossaflens,

Í hóp okkar vina

Það á ekki  bara við um Jens

heldur líka okkur hina!

 

Með þessum fallegu orðum kveður gamli

ps....eikkað sem þið kanski ekki vissuð...en gamli á það til að semja einhver bull ljoð :D hér er eitt.....just for you to read

Nú horfinn er allur hlátur minn glaður,
hér er ei nema dauðvona maður
sem kallar á myrkrið og máttarvöld öll
að megi nú ganga í þeirra höll.

En horfin er líka sú hlýja og ást
og hryggðin og ástæður til að þjást,
horfnir allir draumar og dyggðirnar góðu.
Dáið allt gott, kastað fyrir róðu.

Já horfið er allt sem að óskaði sér
og aldregi framar vonir hann ber,
en hveður í ljóði það líf sem að átti
en löngum ei njóta í hamingju mátti.

 

 

 

Over and out

Siggi lukkutröll

 

 

 

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 17:03:23 / duff2good

enn eitt bloggið......

góðan góðan fólkið mitt! :) 

jæja ég ákvað að segjast niður og skrifa nokkrar línur. Of fyrst langar mér að taka undir það sem hann leifur segir um okkur dívurnar þarna á blogginu sínu.

Ég á æðislega vini....mér finnst ég vera heppnasti maðurinn í heimi...og þessi vinahópur sem núna hefur myndast....er ótrúlega samheltinn....og ég veit og finn að við munum haldast saman alveg þangað til við endum á bingókvöldum saman í vinabæ ;)  alveg sama hvað aðrir segja um okkur...við vitum best sjálfir hvar við höfum hvorn annan..og aldrei er hægt að hlæja meira en með ykkur :)  bara skemtun í hvert sinn sem við hittumst....og maður finnur ekki svona hóp á hverju götuhorni. guys your special  ;)

Svo allir hinir líka......ég væri ekkert án ykkar krúttin mín :) 

Svo já til hamingju stelpur........Karen og Hildur!  mér finnst þið svo sætar saman....og ég veit að þetta á eftir að endast hjá ykkur. :)  you are just so in love! til hamingju aftur...i loveya 

Jens til hamingju með fss dæmið....ég veit þú verður fullkominn í starfið :) svo hress og málefnanlegur :)

Annað kveld eigum við félagarnir einn gamlann í hópnum sem er að verða eldri.....haffi kallinn á afmæli...og audda reynum við okkar frábærasta til að gleðja kallinn ...gera eikkað sætt fyrir hann og taka hann á djammið ;)

hmm..........já og svo er minnz nú samt að vinna alla helgina......sem er ágætt..þá fæ ég fríj um næstu helgi og mar skellir sér á ballið frekar þá :)  edrú um helgina...fékk mér bjór í gær og það var rosa stuð á okkur félugunum :)


jæja...við ætlum að hittast í kvöld attur ...fara í bíó..fá okkur að borða og svoleis....
só guys...vildi bara segja hversu mikils þið eruð mér....love you to death!!!!

og allir hinir straight vinir og félagar...gay eða bi.....what ever...love you tooo

gamli kveður klökkur

over and out





» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 21:07:49 / duff2good

kominn tími fyrir smá blogg

hola hola....


loksins blogg....hvað er að frétta af gamla...well ekki neitt reyndar...ekkert spennnandi til að blogga um get ég nú sagt...

well jú kom heim í dag eftir æðislega sumarbústaðarferð...mjög jákvætt ferð með vinunum.....takk strákar...ég skemti mér vel.

veit ekkert hvað ég að segja....meira...kanski  mar fari bara að hætta þessu blogg dæmi
hehe...
en  aníhú.....im off.....

gamli

» 7 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 16:04:48 / duff2good

góðan daginn allan daginn ;)

jæja fólki til lands og sveita.....hvað hefur þessi stór skrítni kokkur verið að bralla?

well bíð spenntur eftir helginni núna því mér er boðið í útskriftarveislu til jakobs kallsins og lilju. Verður æði að sjá alla gömlu félagna attur og skralla eikkað með þeim ef mar kemst stuð til þess :)

seinustu daga hef eg verið duglegur að sprikkla og vinna...og jú eikkað bíó skröllt á mér líka.

Svo er ég alltaf hjá tannlækninum.....uuuughhhh.....gera við, gera við...þarf að fara 2svar í viðbót þangað. Er farinn að halda að hann sé að safna sér fyrir nýjum bíl eða eikkað...pifff.....eikkað er það..og með mér gæti hann átt fyrir þokkalegum jeppa bara held ég :D....nei nei það er mikilvægt að hafa góðar tennur...en í þessu fagi mínu fyljga þessi tannvandamál stundum..mar er alltaf að smakka eikkað og það er ekki gott fyrir þær blessaðar.

hmm........jamm er í fríji um helgina og HLAKKAR mikið til ......slappa af og anda aðeins rólega...verið eiginlega bara nóg að bralla undanfarið sko.  Langar jafnvel í bláa lónið ef ég næ að plata einhvern með? :)

Af dívnunum veit ég ekki hvaða djamm þær hafa planað.......eftir seinusta helgarskrall held eg eða finn á mér að þær ætli að verða róllegar EÐA HVAÐ? ;)

anýjú......ég kveð ykkur að sinni.....og again...það skrifar enginn í gestabókin...pifff..hverjir eru að lesa um mig hérna......i wonder

au revoir....
gamli has left the building
over and out


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 14:56:12 / duff2good

Skrítinn helgi að líða undir LOK

jæja...kæru lesendur.....ein helginn enn að líða undir lok....það er sunnudagur....ég búin að vinna...EKKI þunnur aldrei þesssu vant....viðburðarrík helgi má segja.....

föstudagskveldið var spilakvöld heima hjá siggu æði, með nokkrum vinum..það var nokkuð cosý og róllegt....laugardaginn var ég að vinna til 5...fór í ræktina og fór svo að sækja einar...beint í party til leifs og más...það var fínt....fór heim snemma sökum vinnu.

And here i am...bún að vinna í allan morgun...hundleiðist..nenni varla að standa upp....nennir enginn með mér í ræktina...veðrið úti er gjeggjað...þannig ég ætla að skríða útá plan og þrífa bílinn minn.....hlusta á Elvis og drepa þenna not so intresting day......

hmm...já svo er það pælinginn......hvaða manneskjum laðast mar að? þá meina ég sem maka...ég hef verið að hugsa...sko....af fyrstu kynnum laðast ég yfirleitt ekki að manneskju....en því meir sem mar kynnist henni þá einhverneginn fer manni að lítast vel á hana...en þá er mar orðinn vinur/félagi....og er það ekki svoldið erfitt? mar reynir ekki við félaga sína? jamm ég veit ég er skrítinn....en thats the way it goes...


með von um góðan dag folks
SHS has left the building
over and out

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 17:02:31 / duff2good

hva.....svona stutt milli blogga? :D

jamm....ekkert að frétta....hvað á ég að skrifa....hmmm....
er ekki kominn tími á nýja skoðanakönnun? hvað á ég að spyrja....commentiði plís...

dagurinn í dag....er chill með misty....eftir ræktina með LEIF.....omg....annað sinn á 12 mánuðum í ræktina...Leibbi...,nú er bara að halda ótrauður áfam, u go girl...og Hemmi fer að taka þetta með stæl fljótlega líka ;)...markmiðið mitt er að koma, kominn niður í 75 kg :D sem var svona takmark....en þá er bara að halda áfram og gera betur.

næstu dagar einkennast af vinnu....og sprikkli....fríji á föstudaginn....hvað á mar að gera þá? sofa ræktinnn....labb með voffa. Svo gott að hafa hana hjá sér...hún er mesta pabbastelpa í heiminum sko, bara yndið mitt eina sko :)

jæja kútar, kellur, hommar...dillirófur...rassálfar...drottningar og allir hinir sem vetlingi getað valdið...ekki gleyma að standa saman www.mannrettindi.net

takk fyrir mig
over and out
DAZ eskimo

já og þið sem eruð á föstu, deintandi eða in love....
  HAPPY  VALENTINESDAY ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 22:57:30 / duff2good

á mar að blogga??

jæja kæra fólk...hér set ég..það er sunnudagskveld....en ein djamm helgin á enda....úffff....
hvað á ég að segja ykkur sniðugt? var að vinna á föstudag og laug....en fór á ball í gær....woo hooo...í einhverja iðusali...og nota bene....beið í klukkutima í röð....samtökin floppuðu heldur betur á þessu?  alveg hrikalegt sko...takk

en við skemtum okkur samt rosa vel....minnz skrallandi fullur as usual...kominn heim um 6 30 og sofnaði takk fyrir!   Takk fyrir djammð drengir...þið eruð æði

En já og meira Segja einsi skeinsi kom a ballið með okkur wúúúhúúú

ný vika framundan...jay.....dívudjamm um næstu helgi mínus ég...vinna alla helgina....sorry boys

pæling dagsins.....eru einhverjir almennilegir sætir strákar (gay) sem eru á lausu þarna úti? er mar að nenna að vera single forever eða?

Siggs has left the building
over and out

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 17:23:44 / duff2good

heil og sæl öll sömul....

Annað blogg..hmm.....hvað á ég að segja....bloggletinn hefur alveg veriðað drepa mig...núna sit ég veikur heima..eftir að hafa verið með einhverja döfulsins ælupest í alla nótt og ekki liðið vel í dag.

Seinustu dagar og helgar...hm...um þessa helgi hélt ég smá teiti handa vinunum...bauð í smá mat og þar var horft á júróvision...áfram silvía segi ég....kíkti svo í bæin...það var okey sko...ekkert meira en það....svo sunndagurinn fór í þvinnku að mestu leiti....

hmm.....hvernig væri að skrifa í gestabókina þið sem commentið aldrei? ;)

hvað er á döfinni..jú það er ball um næstu helgi sem ég held eg einfaldlega sleppi.....verði bara sallarólegur enda að vinna allan daginn og svoleis.  Spyrjum að leikslokum samt...hehe....

hugurinn farinn að reika eikkað ut hjá gamla...út fyrir landsteinana í fríj eða eikkað.....verð að fá smá sól og hita...og smá aðra menningu við og við.  Ekki spurning...þetta kemur í ljós ...hehe who knows ;)

já djöfull er leiðinlegt að vera svona veikur....hanga heima og gera ekki neitt...sitja uppí rúmmi.....hanga í tölvunni eða lesa....not my thing sko.....langar í ræktina, vinnuna, rúntinn, eikkað ...spleeehhhhh...en nei, eg og klósettið bestustu vinirnir i heiminum....yuck

jæja kæra fólk...þið sem heima sitjið....og líka þið hinir....það er mikilvægt málefni í þjóðfelaginu í dag og eg bið ykkur um að kvitta hérna fyrir mig ef þið styðja jafnrétti samkynhneigðra... www.mannrettindi.net  mér finnst skammarlega fáir búnir að kvitta og af hverju á að mismuna okkur fyir að vera ekki eins og hinir....þessi blessaði biskup ætti nú bara að hugsa sinn gang og útskýra mál sitt betur en með orðum úr mörg þúsund ára gamalli skopsögu takk fyrir.......

heimapúkinn hveður að bili
kv Siggs

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 22:06:14 / duff2good

hvað er þetta með mig????

jæja kæra fólk ...þetta fer að verða mánaðarlegt blogg bara...djöfull er ég slappur í essu, biðst forláts, sáðláts af afláts...

en jamm.....hvar var ég?  áramótin...já þau eru liðinn..enn eitt árið skollið á...og eins og venjulega eru nýársheitinn mörg og úff...ég er alltof léleugr að halda þau sko!! Ekki hættur að reykja!!! djö mar.. ég ætla svo að hætta ..þetta er ógó....en hvað um það...ég er að vinna í essu....woo hooo

undanfarna daga hef ég nú bara verið að vinna...en nei bíddu við...kikti nú á djammið um seinustu helgi...það var rosa gaman nema hvað að ég var orðinn ansi skrautlegur fyrir rest...og var svo heppinnn að fá bara far heim um 5 leitið með vini mínum.. en það var nú æðislegt kvöld..fórum á ball á nasa..og þar hitti ég kærusturnar mínar að austan, og voru þær hressar sem alltaf sko, við stigum trilltan dans að vanda....og  audda vantaði ekki dívurnar góðu í hópinn ;)

hmmm....já hvað er planað...þessi helgi er nú bara vinna og attur vinna....geri ekkert spennandi þessa helgi.....hef nú samt verið að skella mér í pool með félugunum ansi mikið þessa vikuna....úff það er svo gaman :) minnz alveg hrikalega lélegur en samt..það kemur nú fyrir að andstæðingurinn hitti svörtu ofaní...og yay...þá vinn ég :D

Heyrru jú ...ég er byrjaður á gömlum ,,sið" , byrjaður að vakna í að bera út moggan fyrir vinnuna hjá mér....það er svo hressandi og friskandi...svo fer mar bara beint þaðan í vinnuna endurnærður eftir hressandi labbitúr :)  Gerði þetta nú í 4 ár á meðan ég var að læra...og saknaði þess alltaf pínu....sjáum hvað ég endist í því :)

Sá æðislega mynd um daginn...Brokeback mountain!!!   mæli hiklaust með henni, hún er í senn allt sem rómantísk mynd þarf af að státa. Er eikkað annað spennandi í bíó???? mar spyr sig....kanski næstu viku þemi verði bíó vika...who knows....

Já það er allt að gerast í kringum mann í ástarlífi annara ...nóg að gerast, byrja, hætta saman.......giftingar og allt sem því fylgir.  Úff minnz bara hálf feginn að vera single og hafa ekki áhyggjur af þessu í bili :) 

Æjjjjj ég sakna samt hrikalega Arnars vinar míns.......Arnar, ég lofa að fara að hringja í þig...þú ert bara æði og takk fyrir tímann saman úti.

Heyrru jú ...er mar að fara á eurovísion í maí???  gæti endað svoleis að mar fljúgi til london og þaðan til aþenu í viku að fara að horfa á liðið syngja...úff það væri nú endalaust gaman ......en já sumarfríjið mitt verður í maí......svo kanski eikkað smá í haust...langar til systu til usa...en who knows......

heyrru svo sagði einhver við mig um daginn....well í pool reyndar...visst þú ert óheppinn í spilum vertu glaður...þá ertu heppinn í ástum :D  takk takk.....jamm i bangsímoninnn minnn víkur ekki frá mér eina sekúndu.......now thats what you call love ;)

en anyhow....sandra eskan...ég bætti þér inná tengilinn....hlakka til og vonandi fáum við okkur öl saman fljótlega....

eskimóin has left the blogg for now
over and out
love ya all


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 14:06:19 / duff2good

góðan daginn árið 2006!!!!!

Góðan  daginn kæru lesendur.....loksins sest mar niður og skrifar eikkað smá á þessa síðu sína.....

hvað hefur kokkurinn verið að gera síðan seinast?  hmm.....vinna og jólast audda....átti voða cosý aðfangadag með voffanum mínum, hönnu og pabba :)  spólur, nammi og pakkar. 

Svo kom af hinnu frægu ferð sem við dívurnar 8 fórum í....flogið var til Danmörkur og þar var eitt einni nótt. Þar tók Kjartan á móti okkur og sýndi okkur nokkra staði borgarinnar.  Við uppgötvuðum staupa tilboð á einum staðnum og þar var sko gúffað í sig hverjum umgangnum á fætur öðrum...... fram eftir nóttu......

Svo lá leiðin til Ella...til gautaborgar...og var endalaus lesta vitleysa í gangi þar....ætluðum aldrei að komast á um borð í réttu lestina...en ohh well við höfðum það að lokum :) 

2 dagar í Gautaborg hjá ella kútnum voru fínir, djammað og hlegið mikið ...hehe.....hellingur af góðum húmor eftir þessa ferð....en já verslunar dívur hópsins vildu komast fyrr til köpen ef planað hefði verið svo á mánudeginum var haldið í rútu á leið til Köpen......djammað.....farið útað borða...mmmmm mjög góður matur :)  og skrallað fram á morgun.  Svo eins og ég er nú ekki ein af verslunar dívunum...bauð ég Gunna að fara með honum að ná í töskuan sína sem hann týndi og fannst á annari lestarstöð klukkutíma í burtu. 

Eitt orð....bara FRÁBÆR ferð ...takk æðislega fyrir mig allir....þið eruð æði....

en já...Arnar er fluttur til köpen :(   ég sakna hans nú þegar.....en hann er að farað taka við góðu starfi og mun pottþétta ganga vel í sínu starfi og...audda heimsækir maður hann sem fyrst !

hmm.....eitt annað árið liðið.......sem í mínu lífi hefur verið mjög viðburðarríkt...ekki get ég sagt annað sko.....hmmmm

Flutti til íslands í mars.....frá usa og fór að vinna á Egilstöðum...kokka þar á Hótel héraði......vá...frábær tími og kynntist frábæru fólki, vann mikið og öðlaðist góða reynslu.

Hef aldrei djammað eins mikið á einu ári eins og 2005.  Fór á endalaust mikið af böllum, kíkti til reykjavíkur....flutti til reykjavíkur og eyddi frábærum tímum með æðislegustu vinum í heimi :) 

Lovelife.....hefur ekki verið í miklum blóma það árið.....einfaldlega ekki fundið draumaprinsinn enþá.....vonandi verður breyting á því á þessu ári :) vonum það besta bara :)

Veit ekki hvað ég get sagt meira um þetta ár 2005...það var í flesta staði ágætt....en núna er komið nýtt ár og vil ég  ekki hafa það eins.....eigum við að kíkja hvað kokkurinn hefur planað fyrir nýja árið?

1. Hætta að reykja (hættur eftir þessa ferð)
2. Minnka djömminn (spara þannig pening)
3. Gefa meira af mér, sjálfboðastarf hjá rauðakrossinum :)
4. Fara oftar í ræktina, hreyfa mig og njóta útiveru meira
5. Ferðast aftur út....barcelona hljómar vel ;)
6. Fá mér mitt eigið pleis...leigja eða eikkað..hmmmm?
7. Fast setja betur framtíðarplan, skóli, usa, voffi, kærasti, peningamál?

jamm thats it.....minnz setur meira í næstu færslu...
ps..og já það verða hellingur af myndum af ferðinni á öðrum bloggsíðum....jensa, hemma og gunna allavega ;)
kv Siggs das nosmoKING


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4